Fara í efni

Almenningssamgöngur: Ábati, markaðsgreining og markaðssetning

Verkefnið er fjórþætt:

  • Vinna stutta samantekt og draga saman fyrirliggjandi gögn úr rannsóknum og greiningarvinnu sem unnin hefur verið fyrir Strætó og tengda aðila í gegnum tíðina í stutta samantekt til að öðlast betri sýn á þeim upplýsingum sem liggja fyrir varðandi viðhorf almennings gagnvart almenningssamgöngum og ábata þessa.
  • Markaðsherferð og mælingar á upplifun
    Framleiða markaðsherferð á ljósvaka, samfélags- og umhverfismiðlum sem ætlað er að „leiðbeina“ mögulegum viðskiptavinum hvernig best er að nota almenningssamgangnakerfi höfuðborgarsvæðisins. Markmiðið er að „leiðrétta“ ranghugmyndir og misskilning sem mögulega fólk frá því að nýta sér almenningssamgöngur. Notaðar verða aðferðir sem líklegar eru til að ná árangri, s.s. samstarf við þekktan einstaklinga og birtingar á fleiri en einum miðli sem tryggja bæði góða dekkun og tíðni.
    Sérstök áhersla verður lögð á að ná til hópa sem mælst hafa með lakara viðhorf til almenningssamgangna og eru taldir hafa skoðanamyndandi áhrif.
    Ásamt ofangreindu verða framkvæmdar mælingar á viðhorfi almennings á meðan verkefni stendur til að mæla árangur og áhrif herferðar.
  • Allar upplýsingar og niðurstöður mælinga á meðan verkefni stendur verða dregnar saman í samantekt/skýrslu sem Strætó bs, sveitarfélög og hið opinbera geta nýtt til stefnumótunar og í tengdum verkefnum sem miða að því að efla notkun almenningssamgangna.
  • Mótun samskiptaáætlunar fyrir Strætó bs. og sveitarfélög á höfuðborgarsvæðisins sem byggir á fyrrgreindum verkþáttum 1-3.
    Atriði sem verða sérstaklega greind vegna ofangreinds:
    - Aðgengi og aðbúnaður
    - Tíðni ferða.
    - Ásýnd og upplifun.
    - Tenging við aðra ferðamáta.
    - Ábati af almenningssamgöngum fyrir samfélagið
    - Tenging við almenningssamgöngur á landsbyggð