Fara í efni

Fær náttúran nóg rými í skipulagi höfuðborgarsvæðisins? Opið málþing

Miðvikudaginn 9. júní nk. efna Landvernd og Náttúruverndarsamtök Íslands til málþings um samspil náttúruverndar og borgarskipulags á höfuðborgarsvæðinu, þar sem m.a. verður leitast við að varpa ljósi á hvort náttúran fái nóg rými í skipulagi höfuðborgarsvæðisins.

15:00 - 16:00: Erindi
- Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Grænni byggðar
- Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, forstjóri Skipulagsstofnunar
- Jón Kjartan Ágústsson, svæðisskipulagsstjóri Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðisins
- Hildigunnur Sverrisdóttir, deildarforseti arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands

16:00: Spurningar og umræður
16:30: Lok málþings

Fundurinn verður haldinn í salnum Hljóðberg í Hannesarholti, Grundarstígur 10, 101 Reykjavík (gengið inn frá Skálholtsstíg).
Skráning á Landvernd.is
Fundinum verður einnig streymt beint á FB-síðu Landverndar fyrir þá sem ekki komast á staðinn. Hér er viðburðurinn á FB

*Málþingið er hið seinna af þremur um náttúruna á og nálægt höfuðborgarsvæðinu, sem haldin eru af Landvernd og Náttúruverndarsamtökum Íslands. Síðasta málþingið er eftirfarandi og verður auglýst síðar:
Lýðheilsa og náttúruvernd í þéttbýli