Fara í efni

Útgáfa leiðbeininganna Mannlíf, byggð og bæjarrými

Skipulagsstofnun og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) hafa gefið út "Mannlíf, byggð og bæjarrými: leiðbeiningar um sjálfbært skipulag og vistvænar samgöngur í þéttbýli". Þær voru unnar í samstarfi við Teiknistofuna STIKU en EFLA og Landmótun komu einnig að gerð leiðbeininganna.

Rík áhersla á samráð

Verkefnið er hluti af útfærslu stefnumörkunar um byggð og bæjarrými sem birtist í landsskipulagsstefnu og í svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins. Leiðbeiningarnar hafa verið í smíðum undanfarin misseri og var lögð rík áhersla á samráð við bæði fagaðila sem og almenning. Leiðbeiningarnar voru þannig sendar til umsagnar hjá rýnihópi ásamt því að vinnslutillaga var til kynningar síðastliðið sumar og haust. Þá var verkefnið var unnið á vettvangi Svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins sem staðfesti endanlega tillögu að leiðbeiningum á fundi sínum þann 8. desember 2023.

Útgáfuhóf

SSH og Skipulagsstofnun stóðu fyrir útgáfuhófi í anddyri Skipulagsstofnunar 25. janúar 2024 þar sem vefsvæði leiðbeininganna var opnað af Ólafi Árnasyni forstjóra Skipulagsstofnunar og Pawel Bartoszek formanni svæðisskipulagsnefndar.

Vefútgáfa

Þessi útgáfa leiðbeininganna verður vefútgáfa sem er aðgengileg á vef Skipulagsstofnunar. Þar er hægt að skoða leiðbeiningarnar í heild eða hvern kafla fyrir sig. Einnig er hægt að sækja myndefni leiðbeininganna til að nota í kynningar og annað efni. Það er von þeirra sem að leiðbeiningunum standa að þær muni nýtast öllum þeim sem láta sig skipulagsmál varða. Það á við um fagstéttir, embættisfólk, kjörna fulltrúa og vitaskuld almenning. Leiðbeiningunum er ætlað að vera lifandi vegvísir að sjálfbæru skipulagi með samþættingu byggðar og samgangna, þar sem gæði byggðar og fjölbreytt bæjarrými sem iða af mannlífi, eru leiðarljósið.

Vefsíða verkefnis: https://www.skipulag.is/skipulagsstofnun/skipulag-og-honnun-baejarryma/