01. júní 2021
Matvælasjóður
Landshlutasamtök og atvinnuþróunarfélög landshlutasamtakanna halda kynningarfund um Matvælasjóð fimmtudaginn 3. júní kl. 13.
Hlutverk sjóðsins er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum.
Áhersla sjóðsins er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu um land allt. Markmið Matvælasjóðs er að ná til verkefna á öllum stigum, allt frá hugmyndum til markaðssetningar og hagnýtra rannsókna.
Hér að neðan er hlekkur á fundinn: