Fara í efni

Almenningssamgöngur

Almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu - Nýir notendur

Verkefnið „Almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu – nýir notendur“ er eitt af áhersluverkefnum sóknaráætlunar fyrir árið 2024. Markmiðið er að auka þekkingu og ánægju nýrra notenda með núverandi þjónustu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu.

Um er að ræða framhaldsverkefni verkefnisins: Almenningssamgöngur - Ábati, markaðsgreining og markaðssetning, sem var unnið á árinu 2023, sjá hér neðar. Niðurstöður þjónustukönnunar úr því verkefni leiddu í ljós að þátttakendur höfðu oft ófullnægjandi þekkingu á þjónustu Strætó og höfðu neikvætt viðhorf til almenningssamgangna vegna þess. Í verkefninu var viðhorf íbúa á aldrinum 18-35 til Strætó mæld fyrir og eftir þátttöku í „master-class“ fræðslunámi á netinu. Mælingar sýndu að jákvætt viðhorf til almenningssamgangna jókst umtalsvert eftir fræðslu um fyrirliggjandi þjónustu Strætó.

Í þessu verkefni voru ofangreindar niðurstöður nýttar til að mæla hvort jákvætt viðhorf nýrra notenda til almenningssamgangna aukist ef þeim verður boðið að prófa þjónustuna. Markhópnum var leyft að prófa kerfið, til dæmis með Klapp kortum með inneign.  Að prufutíma loknum voru þátttakendur spurðir aftur um viðhorf sitt og mælt hvort notkun á kerfinu hafi leitt til jákvæðara viðhorfs til þjónustunnar. Reynidist svo vera og  má nýta niðurstöður til að auka fræðslu almennings um fyrirliggjandi þjónustu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu með það að markmiði að auka notkun.

Markhópurinn samanstóð af einstaklingum á aldrinum 18-25 ára, búsettum á höfuðborgarsvæðinu og sem höfðu ekki notað Strætó reglulega á síðustu 12 mánuðum. Ákveðin áskorun fólst í því að hafa þennan markhóp þar sem reynslan sýnir að erfiðara reynist að jafnaði að ná til yngri markhóps en eldri. Eins voru þetta einstaklingar sem höfðu ekki nýtt sér almenningssamgöngur reglulega og þannig verið að fá fólk til að breyta venjum sínum með því að fá það til að taka þátt í verkefninu. Birtingarmiðlar voru valdir út frá greiningum um hvernig best sé að ná til þessa markhóps og því var ákveðið að nýta samfélagsmiðla til að ná til markhópsins.

Ástæðan fyrir vali á þessum markhóp var sú að þetta er sá hópur sem hefur ítrekað mælst neikvæðari í viðhorfi en eldri markhópar í viðhorfskönnunum Strætó og því mikilvægt að reyna að fá fram jákvæðara viðhorf frá þessum hópi. Einnig er fólk á þessum aldri oft í námi og á t.d. ekki sína eigin bifreið og því mikilvægt að kynna þeim fyrir almenningssamgöngum til að reyna að hafa mótandi áhrif á ferðavenjur þeirra í framtíðinni.

Eitt af því sem viðhorfskannanir Strætó hafa sýnt er að virkir notendur hafa jákvæðara viðhorf gagnvart Strætó heldur en þeir sem nota ekki Strætó. Það voru því komnar forsendur fyrir því að með því að leyfa fólki að prófa þjónustuna þá muni viðhorfið mælast jákvæðara.

Þrátt fyrir erfiðan markhóp þá náðist tilsett markmið. Það náðist að safna í hóp af nýjum notendum og fá marktækar niðurstöður.

Jákvæð ímynd fólks af Strætó skiptir miklu máli þegar laða á inn nýjar notendur. Það er því nauðsynlegt að hafa markvissa upplýsingagjöf til almennings um þjónustu Strætó og öflugt markaðsstarf til að koma þeim skilaboðum áleiðis. 

Sjá nánar í lokaskýrslunni hér að neðan.


2023

Almenningssamgöngur- Ábati, markaðsgreining og markaðssetning

Verkefnið „Almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu – Ábati, markaðsgreining og markaðssetning“ var eitt af áhersluverkefnum sóknaráætlunar fyrir árið 2023.


Verkefnið var fjórþætt:

  • Vinna stutta samantekt
    Draga saman fyrirliggjandi gögn úr rannsóknum og greiningarvinnu sem unnin hefur verið fyrir Strætó og tengda aðila í gegnum tíðina í stutta samantekt til að öðlast betri sýn á þeim upplýsingum sem liggja fyrir varðandi viðhorf almennings gagnvart almenningssamgöngum og ábata þessa.

 

  • Markaðsherferð og mælingar á upplifun
    Framleiða markaðsherferð á ljósvaka, samfélags- og umhverfismiðlum sem ætlað er að „leiðbeina“ mögulegum viðskiptavinum hvernig best er að nota almenningssamgangnakerfi höfuðborgarsvæðisins. Markmiðið er að „leiðrétta“ ranghugmyndir og misskilning sem mögulega fólk frá því að nýta sér almenningssamgöngur. Notaðar verða aðferðir sem líklegar eru til að ná árangri, s.s. samstarf við þekktan einstaklinga og birtingar á fleiri en einum miðli sem tryggja bæði góða dekkun og tíðni.
    Sérstök áhersla verður lögð á að ná til hópa sem mælst hafa með lakara viðhorf til almenningssamgangna og eru taldir hafa skoðanamyndandi áhrif.
    Ásamt ofangreindu verða framkvæmdar mælingar á viðhorfi almennings á meðan verkefni stendur til að mæla árangur og áhrif herferðar.

 

  • Mæla árangur og áhrif herferðar í endanlega skýrslu
    Allar upplýsingar og niðurstöður mælinga á meðan verkefni stendur verða dregnar saman í samantekt/skýrslu sem Strætó bs, sveitarfélög og hið opinbera geta nýtt til stefnumótunar og í tengdum verkefnum sem miða að því að efla notkun almenningssamgangna.

 

    • Mótun samskiptaáætlunar fyrir Strætó bs. og sveitarfélög á höfuðborgarsvæðisins sem byggir á fyrrgreindum verkþáttum 1-3
      Atriði sem verða sérstaklega greind vegna ofangreinds:
      - Aðgengi og aðbúnaður
      - Tíðni ferða.
      - Ásýnd og upplifun.
      - Tenging við aðra ferðamáta.
      - Ábati af almenningssamgöngum fyrir samfélagið
      - Tenging við almenningssamgöngur á landsbyggð