Hringrásarhagkerfið
Á árinu 2023 tóku sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu upp nýtt og samræmt flokkunarkerfi á heimilisúrgangi. Með lögum um hringrásarhagkerfi, sem tóku gildi um áramótin, verður skylt að flokka heimilisúrgang í fjóra flokka við heimili: pappír, plastumbúðir, matarleifar og blandaðan úrgang.
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu, Garðabær, Hafnarfjörður, Kjósarhreppur, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjavík og Seltjarnarnes, hafa unnið ötullega að undirbúningi nýja kerfisins á undanförnum tveimur árum. Innleiðing breytinganna hófus á vormánuðum 2023. Skipt var um sorptunnur á 95 þúsund heimilum á höfuðborgarsvæðinu og gekk vinnan vonum framar.
Nýtt kerfi gerir Sorpu kleift að flokka enn betur því það er mikilvægt að halda auðlindum innan hringrásarhagkerfisins. Því betur sem íbúar flokka úrganginn, því meiri líkur eru á að hægt sé að endurvinna hann.
Afrakstur verkefnisins: