04. nóvember 2024
Aðalfundur SSH 2024 - Formannsskipti
Aðalfundur SSH var haldinn föstudaginn 1. nóvember 2024 í Hlégarði í Mosfellsbæ. Auk almennra aðalfundastarfa urðu formannsskipti í stjórn SSH. Formennska í stjórn samtakanna skiptist milli framkvæmdastjóra sveitarfélaganna þannig að hver þeirra gegnir því embætti í tvö ár.
Á fundinum tók Einar Þorsteinsson borgarstjóri við keflinu af Regínu Ásvaldsdóttur bæjarstjóra í Mosfellsbæ. Einar mun gegna formennsku stjórnar SSH fram að aðalfundi samtakanna 2026.