Út um allt er nýr upplýsingavefur um útivist á höfuðborgarsvæðinu
- Á vefnum Út um allt, utumallt.is, má finna yfir 30 útivistarsvæði og 40 göngu- og hjólaleiðir um allt höfuðborgarsvæðið, og mun bætast í eftir því sem vefurinn þróast.
- Vefurinn er einfaldur í notkun og sýnir staðsetningu notanda á korti í rauntíma.
Út um allt, nýr upplýsingavefur um útivistarmöguleika á höfuðborgarsvæðinu, var formlega tekinn í notkun á fundi stjórnar Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH), mánudaginn 3. febrúar. Á vefnum utumallt.is er að finna yfirlit og upplýsingar um yfir 30 skemmtileg útivistarsvæði og 40 kortlagðar göngu- og hjólaleiðir, vítt og breitt um höfuðborgarsvæðið. Leiðum fylgja gagnlegar upplýsingar, til að mynda um erfiðleikastig og tímalengd, og getur notandi jafnframt séð eigin staðsetningu á korti og fylgt leið í rauntíma. Á síðunni er góð leitarvél og hægt er að sía eftir ýmsum breytum á borð við sveitarfélag, aðstöðu, þjónustu og aðgengi. Vefurinn, sem er bæði á íslensku og ensku, er samstarfsverkefni SSH og Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins.
Aukin hreyfing og nýting á grænum svæðum
„Eitt af leiðarljósum sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins er að stuðla að heilnæmu umhverfi og heilbrigðu lífi. Í því ljósi ákváðum við að þróa og setja upp vandaðan útivistarvef sem gefur yfirsýn yfir þá fjölbreyttu útivistarmöguleika sem höfuðborgarsvæðið býður upp á. Þeir verða þannig bæði sýnilegri og aðgengilegri fyrir íbúa. Við vonumst innilega til að vefurinn stuðli að aukinni hreyfingu, ánægju og nýtingu á grænum svæðum.“ segir Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri SSH. Páll Björgvin bendir á að Út um allt tengist fleiri verkefnum sem stuðla að markmiðum sóknaráætlunarinnar, til að mynda Kortlagningu útivistarsvæða á höfuðborgarsvæðinu sem lauk árið 2023. Vefurinn er einnig tengdur samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og þeirri umfangsmiklu uppbyggingu hjóla- og göngustíga sem þar er kveðið á en síðan er hönnuð til að nýta hjóla- og göngustíganet höfuðborgarsvæðisins til framtíðar.
Ljósmynd tekin í Fossvogsdalnum af Ingu Hlíin Pálsdóttur framkvæmdastjóra Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins og Páli Björgvini Guðmundssyni framkvæmdastjóra SSH
Mikið samráð og þarfagreining
„Þetta hefur verið einstaklega skemmtilegt verkefni í þróun og hafa m.a. sjálfboðaliðar tekið þátt í kortlagningu slóða. Má sérstaklega nefna hjólreiðasamtökin Reiðhjólabændur sem merktu og skráðu fyrir okkur hjólaleiðir og flokkuðu eftir erfiðleikastigi og færum við þeim bestu þakkir“ segir Páll Björgvin.
Út um allt hefur verið tæp tvö ár í undirbúningi. Ráðist var í djúpa þarfagreiningu og var samráð haft við íbúa, sveitarfélögin, ferðaþjónustuna og aðra hagaðila á höfuðborgarsvæðinu, enda mikilvægt að vefurinn sé sniðinn að þörfum notenda. Vefurinn byggir á miðlægu skráningarkerfi og gagnagrunni Ferðamálastofu sem heldur utan um gönguleiðir og útivistarsvæði um land allt. Fyrirtækið Sjá - óháð ráðgjöf sá um undirbúning og þarfagreiningu en fyrirtækið Um að gera sá um hönnun og smíði.
„Við munum nú halda áfram að þróa Út um allt og bæta við leiðum og skemmtilegum svæðum. Við hvetjum alla til þess að nýta sér vefinn og fara út og njóta náttúrunnar sem umvefur höfuðborgarsvæðið“ segir Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins.
Nánari upplýsingar veitir:
Páll Björgvin Guðmundsson,
framkvæmdastjóri SSH
í síma 821 8179