Höfuðborgarsvæðið 2040
Verkefnislýsing fyrir nýtt svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu gerðu í ágúst 2012 með sér samning um endurskoðun svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins. Sameiginleg svæðisskipulagsnefnd leiðir verkefnið, sameiginleg stefna sveitarfélaganna um hagkvæma og sjálfbæra þróun höfuðborgarsvæðisins.
Tekin hefur verið saman lýsing á því hvernig staðið verður að verkefninu. Lýsingin er forskrift að þeirri vinnunni sem framundan er; viðfangsefni hans og verklag. Allar sveitarstjórnir hafa samþykkt lýsinguna og er verkefnið þegar komið vel af stað.
Lýsingin er nú kynnt á vef Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, www.ssh.is, og á heimasíðum aðildarsveitarfélaganna, Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Mosfellsbæ, Seltjarnarnesi og Kjósarhrepps, í samræmi við 23. gr. skipulagslaga. Útprentað eintak liggur einnig frammi á skrifstofum SSH, Hamraborg 9, Kópavogi.
Íbúar á höfuðborgarsvæðisins og aðrir hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér lýsinguna og koma á framfæri ábendingum um nálgun og helstu forsendur áætlunargerðarinnar. Þær má senda til ssh@ssh.is eða til svæðisskipulagsstjóra SSH, Hamraborg 9, 200 Kópavogi.
Svæðisskipulagsstjóri höfuðborgarsvæðisins