Vinnustofa um skipulag almenningssamgangna
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu áttu frumkvæðið að því að flytja inn einn virtasta almenningssamgöngusérfræðing sem völ er á - Jarrett Walker sem kemur frá Portland í Bandaríkjunum. Jarrett hefur starfað með fjölda borga að bætingu á almenningssamgöngukerfinu þeirra með frábærum árangri. Koma Jarrets Walkers tengist því að nú í kjölfar nýs svæðisskipulags eru sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu, í gegnum SSH, að hrinda af stað seinni áfanga í Borgarlínu verkefninu.
Verkefnið er liður í sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins og er markmiðið að í lok verkefnisins sé búið að skipuleggja nýtt almenningssamgöngukerfi, hagræn greining liggi fyrir ásamt úttekt á fjármögnunarleiðum. Á þessum grunni verður hægt að taka endanlega ákvörðun um uppbyggingu Borgarlínu.
Jarrett hélt tveggja daga vinnustofu fyrir þá sérfræðinga sem munu tengjast verkefninu. Þar voru m.a. lykilstarfsfólk á skipulags- og samgöngudeildum sveitarfélaga, Strætó bs., innanríkisráðuneytinu, Vegagerðinni ásamt fulltrúum frá þeim ráðgjöfum sem koma að verkefninu og fulltrúum grasrótarsamtaka.
Myndir frá vinnustofu
{loadposition myndir_ssk_borgarl_2015}
Á vinnustofunni æfðu þátttakendur sig fyrst að skipuleggja almenningssamgöngur ímyndaðri borg áður en hafist var handa með höfuðborgarsvæðið. Markmiðið með vinnustofunni var að í lok hennar:
- deildu þátttakendur sama skilning á þeim lögumálum sem gilda um skipulag og rekstur almenningssamgangna
- hefðu þátttakendur reynslu við að skipuleggja net almenningssamgangna miðað við ákveðin rekstrarkostnað
- væri SSH og sveitarfélögin með fóður í áframhaldandi vinnu við skipulag Borgarlínu
- væri búið að mynda rýnihóp sem kalla má saman eftir því sem verkefninu vindur fram
Jarrett Walker ásamt fagteyminu sem kemur að Borgarlínuverkefninu..Frá vinstir; Jarrett Walker, Þorsteinn Hermannsson, Lilja G. Karlsdóttir, Hrafnkell Á. Proppé og Smári Ólafsson