Fara í efni

Hvítá til Hvítá

Þróun Hvítá til Hvítá svæðisins (SV hornið)

Verkefnið er eitt af áhersluverkefnum sóknaráætlunar höfuðborgarsvæðisins fyrir árið 2024. 

Markmið með verkefninu er að greina framtíðarbyggðaþróun þéttbýlis umhverfis höfuðborgarsvæðið og móta mismunandi sviðsmyndir til ársins 2050. 

Þéttbýliskjarnar á SV-horninu hafa stækkað ört undanfarna áratugi. Ljóst er að svæðið er að þróast hratt í að verða eitt samtengt og jafnvel heildstætt atvinnu-, þjónustu- og búsetusvæði sem glímir við sameiginlegar áskoranir og á fjölmörg sameiginleg tækifæri. Afleiðingar þessa eru margvíslegar og hafa ekki verið greindar m.t.t. álags á höfuðborgarsvæðið og áhrifa þess á t.a.m. innviði, lýðfræði, húsnæðismarkað, atvinnulíf, gæði bæjarrýma og umhverfismál.

Vöxtur og þróun svæðisins kallar á skipulega heildarhugsun um inniviði og margvíslega þjónustu sem hægt er að leysa á fleiri einn hátt. Hvernig til tekst mun hafa grundvallarþýðingu fyrir samkeppnishæfni svæðisins og landsins alls, lífskjör, lífsgæði, umhverfi og efnahag.

Verkefnið er tvískipt. Í fyrri hluta verkefnisins verður unnin greining á því hver áhrif áframhaldandi óbreyttur vöxtur þéttbýliskjarna utan höfuðborgarsvæðisins til ársins 2050 geti haft á höfuðborgarsvæðið.

Skoðað verður hver áhrifin geti orðið með tilliti til: 

  • Atvinnumála og samkeppnishæfni
  • Ferðatíma allra ferðamáta og umferðarmagn
  • Gæði og ásýnd bæjarrýma
  • Húsnæðis og lýðfræði
  • Lífsgæði íbúa höfuðborgarsvæðisins
  • Mengunar, svifryks og hávaða
  • Öryggi gangandi og hjólandi

 

Í seinni hluta verkefnisins (gert er ráð fyrir að það verði unnið sem sjálfstætt verkefni í framhaldi af fyrri hluta) verður velt upp hugsanlegum sviðsmyndum, sem verða bornar saman, þ.á.m. núllkosti sem sýni óbreytta þéttbýlisþróun, fólksfjölgun og ferðavenjur, samanborið við sviðsmyndir sem sýni þéttbýlisþróun til ársins 2050 án þess að auka álag á höfuðborgarsvæðið.

Verkefnastjóri frá Nordic Office of Architecture hefur verið ráðinn til að vinna greiningu á fyrri hluta verkefnisins á því hver áhrif áframhaldandi óbreytts vaxtar þéttbýliskjarna utan höfuðborgarsvæðisins til ársins 2050 geti haft á höfuðborgarsvæðið og er reiknað með að vinnu við þann hluta ljúki í lok 2024.


Við undirritun samnings 18. júní 2024. Páll Björgvin Guðmundsson framkvæmdastjóri SSH, Halldóra Vífilsdóttir framkvæmdastjóri Nordic á Íslandi og Jóhanna Helgadóttir fagstjóri skipulagsmála hjá Nordic á Íslandi