Forvarnir á tímum Covid-19
Plúsinn - Bætt líðan ungmenna á höfuðborgarsvæðinu
SamfésPlús er nýtt verkefni sem fór af stað á haustmánuðum árið 2020 í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Menntamálaráðuneytið. Verkefnið er mótað og framkvæmt hjá fagaðilum á höfuðborgarsvæðinu sem vinna fyrir ungt fólk á forsendum ungs fólks.
SamfésPlús er verkefni þar sem markhópur verkefnisins er allt ungt fólk á Íslandi á aldrinum 10-25 ára. Plúsinn er viðbót við það frábæra starf sem þegar er í gangi fyrir þennan aldurshóp með því að skapa tengingar milli aðila og auka sýnileika á starfi allra aðildarfélaga Samfés á landsvísu.
Tilgangur Plússins er að ná til ungs fólks á öllu landinu og tryggja samræmt faglegt og margþætt forvarnarstarf til að draga úr neikvæðum langtímaafleiðingum Covid-19 á líf og heilsu ungs fólks. Í Plúsinum verða ungmennum veittar upplýsingar, boðið upp á fræðslu, vakin athygli á jákvæðum fyrirmyndum á samfélagsmiðlum og í hlaðvarpi. Samfés mun koma að verkefninu á virkan hátt ásamt fulltrúum ungmennaráðs Samfés.
Með því að nýta sérstöðu Samfés, sem landssamtök félagsmiðstöðva og ungmennahúsa ásamt breiðum hópi samstarfsaðila sem vinna með ungu fólki, verður Plúsinn miðstöð hugmynda og þekkingar og skapar þannig góðar aðstæður fyrir grasrótar- og faglegt starf.
Plúsinn verður vettvangur óformlegs náms þar sem faglegri þekkingu er safnað saman og verkefni þróuð til að efla hæfileika og hæfni starfsfólks sem vinnur með ungu fólki. Jafnframt staður þar sem aðildarfélagar Samfés, ungmennaráð og samstarfsaðilar, geta nýtt sér og haft aðgengi að.
Með Plúsinum er verið að bæta við og auka sýnileika á mikilvægu starfi félagsmiðstöðva og ungmennahúsa, þjónustu og úrræða fyrir ungt fólk og fagfólk á Íslandi.
Markmið Plússins
Að Plúsinn verði þekkingarmiðstöð sem tengir ungt fólk í leit að aðstoð, fræðslu, stuðnings og félagslegra tengsla.
Að Plúsinn tryggi samræmt faglegt og margþætt forvarnarstarf til að draga úr neikvæmum langtímaafleiðingum Covid-19 á líf og heilsu ungs fólks.
Að Plúsinn verði þekkingarmiðstöð óformlegs náms þar sem faglegri þekkingu er safnað saman og verkefni þróuð til að efla hæfileika og hæfni starfsfólks sem vinnur með ungu fólki.
Að Plúsinn verði þekkingarmiðstöð þar sem tenging getur orðið á milli þeirra sem starfa í skólum, félagsmiðstöðvum, ungmennahúsum, íþróttafélögum, frjálsum félagasamtökum og opinberum stofnunum.
Fyrir hverja er Plúsinn?
- Ungt fólk
- Fyrir fagfólk sem starfar með ungu fólki
- Vettvangur fyrir erlent samstarf
- Fyrir unga frumkvöðla
- Fyrir alla sem þyrstir í meira samtal og samstarf
- Fyrir þá sem vilja þróa, halda eða sækja námskeið
- Skýrsla
- Plúsinn skýrsla 2020