Svæðisskipulagsnefnd
133. fundur svæðisskipulagsnefndar var haldinn föstudaginn 17. janúar 2025.
Fundurinn var sá síðasti sem Pawel Bartoszek formaður sat þar sem hann hverfur nú til annarra starfa en hann mun taka sæti á Alþingi þegar það verður sett 4. febrúar nk.
Pawel hefur verið formaður nefndarinnar síðan í ágúst 2022 en þar áður var hann varaformaður hennar um skeið.
Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins eftir fundinn. Frá vinstri: Sævar Birgisson, Hjördís Ýr Johnson, Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, Hildur Björnsdóttir, Helga Jóhannesdóttir, Pawel Bartoszek, Magnús Ingi Kristmannsson, Björg Fenger, Stefán Már Gunnlaugsson og Svana Helen Björnsdóttir.
Svæðisskipulagsnefnd og skrifstofa SSH þakka Pawel kærlega fyrir gott, faglegt og viðburðarríkt samstarf á liðnum árum og óska honum velfarnaðar í verkefnum hans í framtíðinni.